Fréttabréf 4 mín lestur

September 2026: SalesCloud/Noona, Floti og Fiix

Þrjár nýjar kerfistengingar bættust við í september. SalesCloud/Noona - Sölu- og afgreiðslukerfi, Fiix - Viðhaldsstjórnunarkerfi og Floti - Flotastýringarkerfi.

ÞB
Þórdís Björk Arnardóttir
7. október 2026

Við hjá MeshPro erum stöðugt að bæta við tengingum við ný kerfi og september var engin undantekning. Í mánuðinum bættust við þrjú ný kerfi: SalesCloud/Noona, Floti og Fiix.

Viðskiptavinir komu til okkar með ólíkar þarfir og nýjar áskoranir. Eitt verkefnið snerist um að fá betri yfirsýn yfir sölu, annað um að gera viðhaldsgögn aðgengileg fyrir gervigreind og í því þriðja um að gera gögn um ferðir og stopp ökutækja aðgengileg til greiningar. Hér er nánar farið yfir tengingarnar og hvernig gögnin eru nýtt.

SalesCloud/Noona

SalesCloud/Noona

Sölugögn sem hægt er að greina eftir eigin þörfum

SalesCloud/Noona er sölu- og afgreiðslukerfi sem heldur utan um pantanir, sölu og staðsetningar. Kerfið býður upp á tilbúnar skýrslur, en viðskiptavinur okkar vildi geta sniðið greininguna betur að eigin rekstri.

SalesCloud/Noona býður upp á GraphQL API, sem er frábrugðið hefðbundnum REST-vefþjónustum. Í stað þess að vinna með fyrirfram skilgreindar fyrirspurnir þarf að byggja þær upp eftir því hvaða gögn þörfum viðskiptavinarins. Þetta var fyrsta GraphQL-vefþjónustan sem við tengdumst hjá MeshPro og gekk tengingin vel. Verkefnið gaf okkur jafnframt góða reynslu sem nýtist þegar við tökumst á við fleiri GraphQL-tengingar í framtíðinni.

Þegar MeshPro hafði sótt gögnin byggði Expectus, móðurfélag okkar, söluskýrslu í Power BI. Þar er hægt að sjá sölu fyrir mánuðinn, síðustu viku og gærdaginn, bera saman sölu milli staðsetninga og fylgjast með hversu margar breytingar eru gerðar á pöntunum.

Gögnin voru einnig tengd við MyTimePlan. Þar er nú hægt að bera saman unnar vinnustundir og fjölda pantana. Þessi samanburður sem var ekki mögulegur í hvorugu kerfinu fyrir sig.

Fiix

Fiix

Viðhaldsgögn sem gervigreind getur unnið með

Fiix er viðhaldsstjórnunarkerfi (CMMS) sem heldur utan um verkbeiðnir, eignaskrá tækja, varahlutanotkun, vinnustundir, mælaálestra og fyrirbyggjandi viðhald.

Viðskiptavinurinn vildi geta notað AI-agent til að spyrja út í viðhald og verkbeiðnir fyrir vélar fyrirtækisins.

Fiix skilar gögnunum í mörgum minni töflum, meðal annars fyrir verkbeiðnir, verkþætti, varahluti og eignir. Þegar farið var yfir gögnin kom fljótt í ljós að hægt væri að sameina margar þessara taflna og gera uppbyggingu gagnanna einfaldari.

Það var gert í gagnavöruhúsi viðskiptavinarins sem Expectus hefur sett upp. Ávinningurinn kom fljótt í ljós: gervigreindin fékk betri grunn til að vinna með, svörin urðu áreiðanlegri og færri tokens fóru í að túlka uppbyggingu gagnanna.

Gamla reglan „rusl inn, rusl út“ á því vel við hér. Gæði svaranna ráðast að miklu leyti af því hvernig gögnin eru uppbyggð og hversu vel þau henta til þess sem á að nota þau í.

Næsta skref er að tengja verkbeiðnirnar við reikninga í AX.

Floti

Floti

Hvar og hve lengi bílstjórar staldra við

Floti frá Trackwell er flotastýringarkerfi sem heldur utan um GPS-staðsetningar ökutækja, akstursferla, ökurita, skynjara og viðhald.

Í þessu verkefni vildi viðskiptavinurinn geta séð hversu oft bílstjórar heimsækja staði viðskiptavina og hversu lengi þeir dvelja á hverjum stað.

Það reyndist ekki alveg jafn einfalt og það hljómar. Lengd stoppa kemur í sérstökum, hreiðruðum lista sem er aðskilinn frá sjálfum akstursferlinum. MeshPro leysti úr þessu þannig að tengingin skilar nú einni töflu þar sem hvert stopp er tengt réttum ferilpunkti með trail_id.

Gögnin eru því tilbúin til frekari greiningar án þess að þurfa að vinna úr þessari uppbyggingu aftur og aftur.

Samstarf MeshPro og Expectus

Þessi þrjú verkefni eru ólík, en eiga það sameiginlegt að það þarf meira en bara að sækja gögn úr kerfi til að gera þau virkilega gagnleg.

MeshPro sér um tenginguna og tæknilegu áskoranirnar sem fylgja hverju kerfi – hvort sem um er að ræða hreiðruð gögn, dreifðar töflur eða sérkenni í API-um.

Expectus tekur svo við og mótar gögnin þannig að hægt sé að nota þau í raunverulegu samhengi, hvort sem það er í Power BI-skýrslu eða sem grunnur fyrir AI-agent.

Tilbúið fyrir fleiri viðskiptavini

Þessar þrjár tengingar standa nú öðrum viðskiptavinum MeshPro til boða. Við þekkjum uppbyggingu gagnanna, höfum farið í gegnum helstu sérkenni kerfanna og vitum hvað þarf til að koma gögnunum á þann stað að hægt sé að vinna með þau.

Notar þú SalesCloud/Noona, Flota eða Fiix og vilt nýta gögnin betur? Við getum aðstoðað við að tengja gögnin og gera þau tilbúin fyrir greiningu, skýrslugerð eða aðra notkun.

Sjálfvirk gagnavinna, sami hugsunarháttur

Við einföldum flæði gagna milli kerfa svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli. Lestu meira um lausnirnar okkar eða bókaðu kynningu.

Bóka kynningu