TENGING TILBÚIN

Fiix tenging
fyrir viðhaldsstjórnun og eignaskráningu

Fiix er skýjalausn fyrir viðhaldsstjórnun (CMMS) sem fyrirtæki nota til að halda utan um verkbeiðnir, eignaskrá, varahlutanotkun og áætlað viðhald búnaðar og aðstöðu.

Fiix

Fiix

Verkbeiðnir, varahlutanotkun og eignaskrá

UPPRUNI
19 töflur
MeshPro

MeshPro

Sækir, umbreytir og flytur gögn

TENGING
Lendingarstaður

Þinn gagnagrunnur

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

LENDINGARSTAÐUR

Flokkur

Verkefna- & tækjastýring

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði

Gagnaflæði

Gögn lesin uppúr kerfi

Lendingarstaðir

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

Hvernig virkar MeshPro-tengingin við Fiix?

MeshPro tengist Fiix API og flytur gögnin sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þau við innkaup, bókhald og önnur rekstrargögn. Þannig fæst heildarsýn á viðhaldsstundir, varahlutanotkun og stöðu búnaðar án handvirkrar gagnasöfnunar.

Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.

01

Stofna aðgang

Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Fiix sem upprunakerfi.

02

Tenging við lendingarstað

Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.

03

Aðgangur að Fiix

Þú útvegar API-tengilykla frá Fiix (API Application Key, Access Key, API Secret), eða felur kerfisstjóra Fiix að búa þá til.

04

Sjálfvirk uppfærsla

MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.

Hvað gera viðskiptavinir með Fiix-gögnin?

Tengdu gögnin frá Fiix við Power BI eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.

Viðhald

Yfirsýn yfir viðhaldsstundir og verkbeiðnir

Greindu unnar vinnustundir, verkbeiðnir og verkþætti eftir eignum, deildum og tímabilum. Með sjálfvirkt uppfærðum gögnum úr Fiix er hægt að fylgjast með álagi viðhaldsteymis og greina hvar viðhaldsvinna fer fram og kostnaður fellur til.

Rekstur búnaðar

Eignaskrá og varahlutanotkun

Tengdu eignaskrá, varahlutanotkun og birgðastöðu saman og fáðu heildarsýn á ástand búnaðar og notkun varahluta, auk þess að sjá hvenær þörf er á að endurpanta.

Innkaup

Greining innkaupasögu

Skoðaðu innkaupapantanir og pöntunarlínur til að greina innkaupamynstur, birgja og kostnað við varahluti og búnað yfir ákveðið tímabil.

Töflur sem MeshPro sækir úr Fiix

Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Fiix og gögnin sem þær innihalda.

19 töflur
Tafla Tafla á lendingarstað Hvað inniheldur hún
Verkbeiðnir MP_Fiix_WorkOrder Viðhaldsverkbeiðnir, ein færsla fyrir hverja viðhaldsvinnu, með stöðu, forgangi og dagsetningum.
Verkþættir MP_Fiix_WorkOrderTask Einstök verkefni innan verkbeiðna sem halda utan um áætlaðar og raunverulegar vinnustundir fyrir hverja eign.
Varahlutanotkun MP_Fiix_WorkOrderPart Varahlutir sem notaðir eru í verkbeiðnum, með upplýsingum um raunverulegt notað magn.
Eignaskrá MP_Fiix_Asset Búnaður, verkfæri, staðsetningar og varahlutir sem skráðir eru sem eignir í einni töflu.
Staða verkbeiðna MP_Fiix_WorkOrderStatus Uppflettitafla fyrir stöðu verkbeiðna, t.d. Óskað, Úthlutað, Í vinnslu og Lokið.
Birgðastaða MP_Fiix_Stock Núverandi magn varahluta á lager eftir staðsetningu, með lágmarks- og hámarksmörkum.
Eignaflokkar MP_Fiix_AssetCategory Flokkun eigna í búnað, verkfæri, aðstöðu og varahluti.
Notendur MP_Fiix_User Listi yfir notendur. Afkóðar hver óskaði eftir, kláraði eða var úthlutað verkbeiðni eða verkþætti.
Viðhaldstegundir MP_Fiix_MaintenanceType Flokkun viðhaldsvinnu, t.d. fyrirbyggjandi viðhald, viðgerð og uppfærsla.
Forgangsröðun MP_Fiix_Priority Forgangsstig verkbeiðna, frá hæsta til lægsta.
Verkefni MP_Fiix_Project Hópar saman verkbeiðnir og áætlað viðhald undir sameiginlegu verkefni.
Mælaálestrar MP_Fiix_MeterReading Álestrar af eignum, t.d. keyrslustundir véla, sem viðbótarmælingar fyrir viðhald.
Mælieiningar MP_Fiix_MeterReadingUnit Uppflettitafla fyrir einingar mælaálestra, t.d. klukkustundir eða lotur.
Innkaupapantanir MP_Fiix_PurchaseOrder Pöntunarhaus með upplýsingum um birgja, stöðu, dagsetningar og heildarupphæð hverrar pöntunar.
Innkaupalínur MP_Fiix_PurchaseOrderLineItem Pöntunarlínur sem sýna hvaða varahlutur var pantaður, pantað og móttekið magn og einingarverð.
Staða innkaupapantana MP_Fiix_PurchaseOrderStatus Uppflettitafla fyrir stöðu innkaupapantana, t.d. Samþykkt, Í pöntun og Afgreitt.
Áætlað viðhald MP_Fiix_ScheduledMaintenance Endurtekin, fyrirfram áætluð viðhaldsverk sem mynda nýjar verkbeiðnir samkvæmt áætlun.
Tengingar áætlaðs viðhalds MP_Fiix_ScheduledMaintenanceAsset Tengitafla milli áætlaðs viðhalds og þeirra eigna sem það nær til.
Kostnaðardeildir MP_Fiix_ChargeDepartment Uppflettitafla fyrir kostnaðardeildir sem eru notaðar þvert á verkbeiðnir, innkaup og áætlað viðhald.
Dæmi um heiti töflu: MP_Fiix_[Tafla]

Ef þig vantar fleiri töflur getur MeshPro auðveldlega bætt þeim við. Einnig er hægt að velja sérstaklega hvaða töflur á að sækja, til dæmis ef þú vilt takmarka gagnamagnið.

Viltu fá meira út úr gögnunum þínum?

MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.

Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.

MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.

Forkröfur

Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.

Aðgangur að Fiix API

Þú þarft aðgang að Fiix API í gegnum þrjá tengilykla (API Application Key, Access Key og API Secret). Kerfisstjóri Fiix býr þá til undir Settings > Connect Management > MA Connect API Application Settings.

Virkt Fiix-kerfi með skráðum gögnum

Kerfið þarf að vera í notkun, verkbeiðnir, eignir og viðhaldsvinna þurfa að vera skráð svo gögnin séu gagnleg.

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.

Tilbúinn að tengja Fiix?

Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.

Bóka kynningu