TENGING TILBÚIN

SalesCloud tenging
fyrir sölu- og greiðslugögn

SalesCloud er íslenskt sölukerfi fyrir verslanir og þjónustufyrirtæki, með posa, vefverslun og reikningagerð í einni lausn.

SalesCloud

SalesCloud

Pantanir, reikningar og greiðslur

UPPRUNI
7 töflur
MeshPro

MeshPro

Sækir, umbreytir og flytur gögn

TENGING
Lendingarstaður

Þinn gagnagrunnur

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

LENDINGARSTAÐUR

Flokkur

CRM & sala

Uppfærslutíðni

Mánaðarleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði

Gagnaflæði

Gögn lesin uppúr kerfi

Lendingarstaðir

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

Hvernig virkar MeshPro-tengingin við SalesCloud?

MeshPro tengist SalesCloud API og flytur gögnin sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þau við bókhald og önnur rekstrargögn. Þannig fæst heildarsýn á sölu, greiðslur og vörunotkun án handvirkrar gagnasöfnunar.

Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.

01

Stofna aðgang

Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu SalesCloud sem upprunakerfi.

02

Tenging við lendingarstað

Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.

03

Aðgangur að SalesCloud

Þú útvegar aðgangslykil (access token) frá SalesCloud, eða felur þjónustuaðila SalesCloud að úthluta honum.

04

Sjálfvirk uppfærsla

MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.

Hvað gera viðskiptavinir með SalesCloud-gögnin?

Tengdu gögnin frá SalesCloud við Power BI eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.

Sala

Yfirsýn yfir sölu og greiðslur

Greindu pantanir, reikninga og greiðslur eftir starfsstöðvum, vörum og tímabilum. Fylgstu með þróun sölu, samanburði milli starfsstöðva og stöðu greiðslna.

Vörusala

Hvaða vörur og útfærslur eru vinsælastar?

Greindu sölu eftir vörum. Sjáðu hvaða vörur eru vinsælastar og hvernig sala þeirra þróast yfir tíma. Skoðaðu einnig hvaða viðbætur og breytingar eru oftast gerðar á pöntunum og hvaða útfærslur viðskiptavinir velja helst.

Gagnatenging

Sameinuð gögn úr ólíkum kerfum

Tengdu sölu- og greiðslugögn úr SalesCloud við bókhald og önnur rekstrargögn fyrirtækisins, t.d. tímaskráningarkerfi. Berðu saman sölu milli starfsstöðva, vörur og tímabil og fáðu heildstæðari yfirsýn yfir reksturinn.

Töflur sem MeshPro sækir úr SalesCloud

Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr SalesCloud og gögnin sem þær innihalda.

7 töflur
Tafla Tafla á lendingarstað Hvað inniheldur hún
Pantanir MP_SalesCloud_Orders Pantanir sem viðskiptavinir leggja inn, með upplýsingum um greiðslur og vörulínur.
Reikningar MP_SalesCloud_Invoices Reikningar með upplýsingum um greiðslur og vörulínur.
Greiðslufærslur MP_SalesCloud_PaymentTransaction Greiðslufærslur með upplýsingum um upphæð og tengingu við pöntun eða reikning.
Vörulínur MP_SalesCloud_LineItems Einstakar vörulínur úr pöntunum og reikningum, með upplýsingum um vörur og magn.
Vörur MP_SalesCloud_Items Vörulisti fyrirtækisins, með upplýsingum um vörur og vöruafbrigði.
Starfsstöðvar MP_SalesCloud_Locations Starfsstöðvar og verslanir fyrirtækisins.
Vöruafbrigði MP_SalesCloud_Variations Afbrigði og eiginleikar vara, t.d. stærð, litur eða aðrar útfærslur.
Dæmi um heiti töflu: MP_SalesCloud_[Tafla]

Ef þig vantar fleiri töflur getur MeshPro auðveldlega bætt þeim við. Einnig er hægt að velja sérstaklega hvaða töflur á að sækja, til dæmis ef þú vilt takmarka gagnamagnið.

Viltu fá meira út úr gögnunum þínum?

MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.

Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.

MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.

Forkröfur

Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.

Aðgangur að SalesCloud API

Þú þarft fyrirfram útgefinn aðgangslykil (access token) að SalesCloud API. Hafðu samband við þjónustuaðila SalesCloud til að fá úthlutað lykli fyrir fyrirtækið þitt.

Virkt SalesCloud-kerfi með skráðum gögnum

Kerfið þarf að vera í notkun, pantanir, reikningar og greiðslur þurfa að vera skráð svo gögnin séu gagnleg.

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.

Tilbúinn að tengja SalesCloud?

Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.

Bóka kynningu