Floti er íslenskt flotastjórnunarkerfi frá Trackwell sem fyrirtæki nota til að fylgjast með staðsetningu, viðhaldi, akstri og ökuritum ökutækja í rauntíma.
Floti
Staðsetning, viðhald og akstursgögn
MeshPro
Sækir, umbreytir og flytur gögn
Þinn gagnagrunnur
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
Flokkur
Verkefna- & tækjastýring
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði
Gagnaflæði
Gögn lesin uppúr kerfi
Lendingarstaðir
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
MeshPro tengist Floti API og flytur gögnin sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þau við önnur rekstrargögn. Þannig fæst heildarsýn á flotann án handvirkrar gagnasöfnunar.
Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.
01
Stofna aðgang
Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Floti sem upprunakerfi.
02
Tenging við lendingarstað
Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.
03
Aðgangur að Floti
Þú útvegar API-lykil frá Floti, eða felur Trackwell að úthluta honum.
04
Sjálfvirk uppfærsla
MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.
Tengdu gögnin frá Floti við Power BI eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.
Flotastjórnun
Staðsetning og viðverutími
Greindu akstursleiðir og stopp ökutækja eftir staðsetningum og tímabilum. Sjáðu hvar ökutæki stoppa, hversu lengi þau dvelja á hverjum stað og hvernig aksturinn dreifist.
Viðhald
Viðhaldssaga og ökuritagögn
Greindu viðhaldssögu, þjónustu og ökuritagögn ökutækja til að fylgjast með notkun og skipuleggja viðhald. Tengdu upplýsingar um ökutæki og akstur við önnur rekstrargögn til að fá betri yfirsýn yfir kostnað og viðhaldsþörf.
Rekstur
Akstur, eldsneyti og kostnaður
Skoðaðu akstursfjarlægð, lausagang, hraða og önnur akstursgögn til að greina nýtingu, rekstrarkostnað og aksturshegðun. Tengdu gögnin við bókhald og önnur rekstrargögn fyrirtækisins til að fá heildstæðari yfirsýn yfir rekstur flotans.
Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Floti og gögnin sem þær innihalda.
MP_Floti_[Tafla]
MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.
Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.
MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.
Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.
Aðgangur að Floti API
Þú þarft API-lykil að Floti API. Hafðu samband við Trackwell til að fá úthlutað lykli fyrir flotann þinn.
Virkt Floti-kerfi með skráðum gögnum
Kerfið þarf að vera í notkun, ökutæki flotans þurfa að vera skráð og send gögn svo gögnin séu gagnleg.
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.
Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.