Greinar
Við fjöllum um gagnavinnslu, sjálfvirkni og hvernig fyrirtæki geta nýtt gögn til að skapa betri innsýn og upplýstari ákvarðanir. Efnið byggir bæði á okkar eigin reynslu og því sem við sjáum í verkefnum með viðskiptavinum.
Gögn eru oft til staðar í fyrirtækjum en ekki aðgengileg þar sem þeirra er þörf. MeshPro tengir saman kerfi og sjálfvirknivæðir gagnaflæði svo fyrirtæki geti dregið úr handvirkri vinnu, nýtt upplýsingar betur og byggt traustan grunn fyrir greiningar og gervigreind.
DataFlow
Þegar gögnin eru dreifð um mörg kerfi ræðst svarið af því hvaða kerfi er skoðað. MeshPro DataFlow sækir gögn sjálfvirkt úr kerfunum þínum og safnar þeim í gagnageymslu að þínu vali, svo skýrslur, greiningar og gervigreind byggi á sama grunni.
DataSync
Að sækja gögn er eitt, að skrá þau rétt er annað. MeshPro DataSync skráir reikninga sjálfvirkt í Microsoft Business Central, staðfestir viðskiptavini og vörur og afturkallar ófullgerða reikninga, svo bókarinn sjái aðeins það sem þarf að laga.
DataAccess
Gögnin eru tilbúin, en hver á að fá aðgang að þeim? MeshPro DataAccess opnar valin gögn fyrir samstarfsaðilum, vefsíðum, öðrum kerfum og gervigreind í gegnum OData og MCP. Hver aðili fær eigið auðkenni og sér aðeins það sem honum er heimilað.
Í september bættust þrjú ný kerfi við hjá MeshPro: SalesCloud/Noona, Floti og Fiix. Hér má sjá hvaða gögn kerfin innihalda og hvernig viðskiptavinir nýta þau í dag.
Hættu að eyða tíma í handgerðar mannauðsskýrslur. Tengdu Timon, MyTimePlan og Kjarni við Power BI í gegnum MeshPro.
Nýr, óháður upplýsingavefur fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Rúmlega tuttugu mælikvarðar, með heimild og dagsetningu á hverju grafi.