Harvest er skýjalausn fyrir tímaskráningu og reikningagerð þar sem starfsmenn skrá tíma á verkefni og verkþætti og tímarnir nýtast síðan í uppgjör og reikninga fyrir viðskiptavini.
Harvest
Tímaskráningar, verkefni og viðskiptavinir
MeshPro
Sækir, umbreytir og flytur gögn
Þinn gagnagrunnur
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
Flokkur
Mannauður & tímaskráning
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði
Gagnaflæði
Gögn lesin uppúr kerfi
Lendingarstaðir
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
MeshPro tengist Harvest API og flytur tímaskráningar, verkefni og grunngögn sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þau við bókhald og önnur rekstrargögn. Þannig fæst yfirsýn yfir unnar stundir, nýtingu og framvindu verkefna án handvirkrar gagnasöfnunar.
Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.
01
Stofna aðgang
Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Harvest sem upprunakerfi.
02
Tenging við lendingarstað
Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.
03
Aðgangur að Harvest
Þú útvegar aðgangslykil (personal access token) og auðkenni Harvest reiknings (Account ID) fyrir Harvest API, eða felur stjórnanda í Harvest að útbúa þau.
04
Sjálfvirk uppfærsla
MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.
Tengdu gögnin frá Harvest við Power BI eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.
Verkefnastjórnun
Reikningshæf vinna og innri tími
Sjáðu hversu miklum tíma starfsmenn verja í reikningshæf verkefni samanborið við innri vinnu. Greindu nýtingu eftir starfsmönnum og verkefnum og fylgstu með þróuninni yfir ákveðið tímabil.
Fjármál
Vinnustundir miðað við áætlun
Sameinaðu tímaskráningar úr Harvest við fjárhagsáætlanir úr öðrum kerfum til að sjá hvernig skráðar vinnustundir standa gagnvart áætlun. Fylgstu með frávikum fyrir hvert verkefni og greindu verkefni þar sem vinnustundir eru umfram áætlun áður en kostnaðurinn vex.
Gagnatenging
Sjálfvirk reikningagerð
Nýttu tímaskráningar úr Harvest til að útbúa reikninga fyrir viðskiptavini án þess að þurfa að færa upplýsingarnar handvirkt á milli kerfa. Með MeshPro DataSync geturðu sjálfvirknivætt reikningagerðina og stofnað reikninga beint í bókhaldskerfinu þínu. Þannig spararðu tíma, dregur úr handvirkri vinnu og minnkar hættu á innsláttarvillum.
Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Harvest og gögnin sem þær innihalda.
MP_Harvest_[Tafla]
MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.
Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.
MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.
Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.
Aðgangur að Harvest API
Þú þarft aðgang að Harvest API í gegnum aðgangslykil (personal access token) og auðkenni Harvest reiknings (Account ID) sem MeshPro notar til að sækja gögnin. Stjórnandi í Harvest getur útbúið lykilinn.
Virkt Harvest kerfi með skráðum tímum
Kerfið þarf að vera í notkun og tímar, verkefni og viðskiptavinir þurfa að vera skráð svo gögnin séu gagnleg.
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.
Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.