TENGING TILBÚIN

Kjarni tenging
fyrir launagreiðslur og starfsmannagögn

Kjarni er eitt af vinsælustu mannauðs- og launakerfum á Íslandi. MeshPro tengist Kjarni og flytur starfsmannaupplýsingar og launagögn sjálfvirkt á þinn gagnagrunn eða BI-tól, svo þú getir einbeitt þér að greiningunni frekar en handvirkri gagnasöfnun.

Kjarni

Kjarni

Launagreiðslur og starfsmannaskrá

UPPRUNI
16 töflur
MeshPro

MeshPro

Sækir, umbreytir og flytur gögn

TENGING
Lendingarstaður

Þinn gagnagrunnur

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

LENDINGASTAÐUR

Flokkur

Mannauður & tímaskráning

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði

Gagnaflæði

Gögn lesin uppúr kerfi

Lendingarstaðir

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

Hvernig virkar MeshPro-tengingin við Kjarni?

Prófa núna!

Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.

01

Stofna aðgang

Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Kjarni sem upprunakerfi.

02

Tenging við lendingarstað

Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.

03

Aðgangur að Kjarni

Þú útvegar notanda með lesaðgang að Kjarni. Notandinn getur verið stofnaður af kerfisstjóra hjá þér eða í samráði við þjónustuaðila Kjarni.

04

Sjálfvirk uppfærsla

MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.

Hvað gera viðskiptavinir með Kjarni-gögnin?

Tengdu gögnin frá Kjarni við Power BI eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.

Mannauður

Heildarsýn á starfsmannahópinn

Sjálfvirkt yfirlit yfir alla starfsmenn, deildir og skipulag. Uppfært daglega án handvirkrar gagnasöfnunar.

Laun

Launakostnaður og vinnustundir

Sameinaðu launagögn úr Kjarna við vinnustundagögn úr Timon eða MyTimePlan til að greina launakostnað í samhengi við unnar stundir, deildir og verkefni. Fáðu betri yfirsýn yfir kostnað og nýtingu starfsfólks.

Laun

Samanburður og yfirferð launa

Berðu saman launagögn milli tímabila, deilda eða starfsheita til að greina breytingar á launakostnaði og finna frávik. Með sjálfvirkt uppfærðum gögnum úr Kjarna verður auðveldara að fylgjast með þróun launa og bregðast við óvæntum breytingum.

Töflur sem MeshPro sækir úr Kjarni

Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Kjarni og gögnin sem þær innihalda.

16 töflur
Tafla Tafla á lendingarstað Hvað inniheldur hún
Allir starfsmenn MP_Kjarni_EmployeesAll Heildarlisti yfir alla starfsmenn, virka og fyrrverandi.
Starfsmenn með skipulagi MP_Kjarni_EmployeesAllOrg Starfsmenn tengdir deildum og skipulagsheild fyrirtækisins.
Skipulagseiningar MP_Kjarni_OrgCompanyUnits Deildir, kostnaðarstaðir og skipulagseiningar fyrirtækisins.
Starfsmannavelta MP_Kjarni_EmployeeTurnover Gögn um starfsmannaveltuna: ráðningar og brottfarir.
Launaupplýsingar MP_Kjarni_EmployeeDetailPayWage Ítarlegar launaupplýsingar og launaliðir hvers starfsmanns.
Launabókarreikningar MP_Kjarni_PayBookAccounts Reikningar og flokkar í launabókum.
Launafærslur MP_Kjarni_PayRecord Einstaka launafærslur og greiðsluupplýsingar.
MP_Kjarni_CostCenterSummary
MP_Kjarni_DeptCostCenterSummary
Stéttarfélög MP_Kjarni_PayUnions Stéttarfélög sem starfsmenn og launafærslur eru tengd við.
Kostnaðarstaðir MP_Kjarni_OrgCompanyCostCenters Kostnaðarstaðir fyrirtækisins sem starfsmenn og laun eru bókfærð á.
MP_Kjarni_OrgCompanyPositions
MP_Kjarni_OrgCompanies
MP_Kjarni_PayWage
MP_Kjarni_Pays
MP_Kjarni_CostCenterPayWageSummary
Dæmi um heiti töflu: MP_Kjarni_[Tafla]

Ef þig vantar fleiri töflur getur MeshPro auðveldlega bætt þeim við. Einnig er hægt að velja sérstaklega hvaða töflur á að sækja, til dæmis ef þú vilt takmarka gagnamagnið.

Viltu fá meira út úr gögnunum þínum?

MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.

Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.

MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.

Forkröfur

Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.

Notandaaðgangur í Kjarni

Þú þarft notanda með lykilorð og fyrirtækjaauðkenni. Kerfisstjóri Kjarni getur stofnað þennan notanda með réttan aðgang.

Uppsettar töflur í Kjarni

Kerfið þarf að vera virkjað og gögn til staðar í þeim töflum sem á að sækja.

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.

Tilbúinn að tengja Kjarni?

Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.

Bóka kynningu

Skyldar tengingar

Önnur kerfi í flokknum sem MeshPro styður.