Timon er eitt af vinsælustu viðveru- og tímaskráningarkerfum á Íslandi. MeshPro tengist Timon og flytur gögnin sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, svo þú getir einbeitt þér að greiningu og nýtingu gagnanna, ekki handvirkri samþættingu kerfa.
Timon
Viðvera, stimplanir og verkskráningar
MeshPro
Sækir, umbreytir og flytur gögn
Þinn gagnagrunnur
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
Flokkur
Mannauður & tímaskráning
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði
Gagnaflæði
Gögn lesin uppúr kerfi
Lendingarstaðir
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.
01
Stofna aðgang
Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Timon sem upprunakerfi.
02
Tenging við lendingarstað
Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.
03
Aðgangur að Timon
Þú útvegar notanda með lesaðgang að Timon. Notandinn getur verið stofnaður af kerfisstjóra hjá þér eða í samráði við þjónustuaðila Timon.
04
Sjálfvirk uppfærsla
MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.
Tengdu gögnin frá Timon við Power BI eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.
Mannauður
Sjálfvirk viðverugreining
Greindu mætingu, fjarvistarhlutfall og yfirvinnu eftir deildum, tímabilum og öðrum skilgreindum einingum. Með sjálfvirkt uppfærðum gögnum frá Timon er hægt að fylgjast reglulega með þróun og bera saman niðurstöður án handvirkrar gagnasöfnunar.
Verkefnastjórnun
Kostnaðargreining
Greindu skráðan vinnutíma eftir verkefnum, viðskiptavinum og öðrum kostnaðarflokkum. Nýttu gögnin til að fá betri yfirsýn yfir tíma og kostnað og greina arðsemi verkefna.
Gagnatenging
Sameinuð gögn úr ólíkum kerfum
Tengdu gögn úr Timon við gögn úr öðrum kerfum fyrirtækisins. Þannig er hægt að sjá tengsl milli viðveru, verkefna, starfsmanna og annarra rekstrargagna og fá heildstæðari yfirsýn yfir reksturinn.
Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Timon og gögnin sem þær innihalda.
Timon_[Fyrirtæki]_[Tafla]MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.
Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.
MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.
Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.
Notandaaðgangur í Timon
Þú þarft notanda með lesaðgang að þeim töflum sem á að sækja. Kerfisstjóri Timon getur stofnað og stillt þennan notanda.
Gögn í Timon
Kerfið þarf að vera virkt og gögn þurfa að vera til staðar í þeim töflum sem á að sækja.
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.
Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.
Önnur kerfi í flokknum sem MeshPro styður.