Mannauður 4 mín lestur

Mannauðsskýrslur á sjálfvirkan hátt

Hættu að eyða tíma í handgerðar mannauðsskýrslur. Láttu gögnin vinna fyrir þig.

ÞB
Þórdís Björk Arnardóttir
2. september 2026

Flestir mannauðsstjórar þekkja þetta: Það eru að koma mánaðarmót og þú þarft að skila skýrslu til stjórnenda. Þú opnar Timon eða MyTimePlan, flytur út Excel skrá. Síðan opnar þú Kjarna og flytur út aðra skrá. Þá hefst Excel-vinnan. Gögnin þarf að sameina, yfirfara og samræma. Þegar allt er loksins komið saman hefur hálfur dagur farið í verkefnið.

Svo finnur þú villu sem þarf að leiðrétta og þarft að endurgera alla vinnuna.

Þetta er eitt af vandamálunum sem MeshPro leysir.

Hvernig virkar það?

MeshPro tengist kerfunum sem þú notar í gegnum vefþjónustu, sækir gögnin og uppfærir þau á hverjum degi. Við höfum byggt upp staðlaðar tengingar við helstu íslensku mannauðs- og tímastjórnunarkerfi sem viðskiptavinir okkar nota:

  • Timon – starfsmannaupplýsingar, verkefni, viðvera, fjarvistir og vinnustundir
  • MyTimePlan – vaktir, starfsmannaupplýsingar og ráðningarsamningar
  • Bakvörður – starfsmannaupplýsingar, vaktir og mannauðsumsjón
  • Kjarni – launagögn

Timon og MyTimePlan geyma svipaða tegund gagna. MeshPro tengist hvoru tveggja, þannig að þú getur haldið áfram að nota það kerfi sem hentar þínu fyrirtæki.

Gögnin úr kerfunum eru sótt, unnin og færð inn í SQL gagnagrunn sem er undir þinni stjórn. Þaðan er einfalt að tengja gögnin við Power BI eða annað skýrslutól og vinna með þau á þann hátt sem hentar þér.

Enginn handvirkur útflutningur. Engar Excel-skrár sem þarf að sameina. Gögnin eru sjálfkrafa uppfærð og hægt er að tengja saman gögn úr mismunandi kerfum. Gögnin eru sjálfkrafa uppfærð daglega með grunnáskrift MeshPro. Fyrir fyrirtæki sem þurfa tíðari uppfærslur er hægt að semja um styttri uppfærslutíðni.

Hvað geturðu gert með þessi gögn?

Þegar öll mannauðsgögnin þín eru á einum stað í Power BI opnast heill heimur af möguleikum. Hér eru nokkur dæmi:

Mætingaryfirlit með uppfærðum gögnum

Skoðaðu gögn yfir vaktir og mætingu, sjáðu mætingarhlutfall eftir deildum, fylgstu með þróun yfir tíma og greindu hvort ákveðnir einstaklingar eða hópar séu oft fjarverandi. Með MeshPro eru gögnin sjálfvirkt uppfærð og aðgengileg þegar þú þarft á þeim að halda.

Launa- og kostnaðargreining eftir deild

Þegar launagögn úr Kjarna eru tengd við vinnustundir úr Timon geturðu borið saman áætlaðan og raunverulegan launakostnað eftir deild, starfsstöð eða verkefni. Stjórnendur hafa betri yfirsýn yfir það sem er að gerast í fyrirtækinu.

Starfsmannavelta og varðveisla

Gögn úr Bakverði gefa þér heildarmynd af hvenær starfsmenn hætta, hvernig veltan þróast yfir tíma og hvort ákveðnar deildir eða hlutverk séu að missa fólk hraðar en aðrar. Þetta eru mikilvægar upplýsingar þegar kemur að stefnumótun í mannauðsmálum.

Vaktaskipulag og hagræðing

Með því að tengja saman mannauðsgögn við gögn úr öðrum kerfum er hægt að bera vaktaskipulag saman við raunverulega vinnuþörf og rekstrargögn. Til dæmis er hægt að tengja vaktaskipulag við samningsgögn og ákvarða hversu marga starfsmenn þarf á vakt miðað við fjölda samninga eða verkefna hverju sinni.

Auðveld uppsetning

Við biðjum þig um tvo hluti:

  • auðkenningarupplýsingar fyrir þau kerfi sem þú vilt tengjast
  • upplýsingar um lendingarstað, t.d. SQL gagnagrunn eða Data Lake

Við sjáum um restina.

Engin löng innleiðing og engar breytingar á ferlum innan fyrirtækisins. Þú þarft ekki að skipta um kerfi eða breyta því hvernig þau eru notuð. MeshPro tengist þeim eins og þau eru og flytur gögnin þangað sem þú vilt hafa þau.

Þín gögn, þín stjórn

Gögnin eru þín og þú stjórnar því hvar þau eru geymd og hvernig þau eru notuð.

Þá ertu ekki lengur háður tilbúnum skýrslum, útflutningsmöguleikum eða virkni sem upprunakerfið býður upp á. Gögnin eru aðgengileg í eigin gagnagrunni og hægt er að vinna með þau og aðlaga notkun þeirra að þörfum fyrirtækisins.

MeshPro sér um gagnaflæðið. Þú sérð um að nýta gögnin.

Frá tengingu yfir í verðmæti

Gagnatenging er aðeins fyrsta skrefið. Þegar gögnin eru komin á einn stað getur þú sameinað gögn úr ólíkum kerfum og byggt upp þá greiningu og skýrslugerð sem hentar þínu fyrirtæki.

Ef þú þarft aðstoð við næstu skref getur Expectus einnig komið að verkefninu. Sem dótturfyrirtæki Expectus höfum við aðgang að víðtækri reynslu á sviði gagnavöruhúsa, BI og skýrslugerðar, hvort sem þig vantar ráðgjöf um uppbyggingu gagnagrunns, tengingu við Power BI eða aðstoð við að setja upp skýrslur sem henta þínu fyrirtæki.

Byrjaðu með MeshPro

Viltu sjá hvernig MeshPro gæti nýst í þínu fyrirtæki?

Bókaðu stuttan kynningarfund og við förum yfir hvaða kerfi þú vilt tengja, hvert gögnin eiga að fara og hvernig hægt er að nýta þau áfram.

Sjálfvirk gagnavinna, sami hugsunarháttur

Við einföldum flæði gagna milli kerfa svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli. Lestu meira um lausnirnar okkar eða bókaðu kynningu.

Bóka kynningu