TENGING TILBÚIN

Veðurstofa Íslands tenging
fyrir veðurathuganir og veðurspár

Veðurstofa Íslands birtir veðurathuganir og veðurspár fyrir veðurstöðvar um allt land. Gögnin eru opin og nýtast hvar sem veður hefur áhrif á rekstur, til dæmis í orkunotkun, ferðaþjónustu og samgöngum.

Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands

Veðurathuganir og veðurspár

UPPRUNI
2 töflur

MeshPro

Sækir, umbreytir og flytur gögn

TENGING
Lendingarstaður

Þinn gagnagrunnur

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

LENDINGARSTAÐUR

Flokkur

Opinber gögn & hagtölur

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði

Gagnaflæði

Gögn lesin uppúr kerfi

Lendingarstaðir

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

Hvernig virkar MeshPro-tengingin við Veðurstofa Íslands?

MeshPro tengist API Veðurstofu Íslands og flytur athuganir og spár sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þær við rekstrargögn. Þannig fæst veðurgrunnur fyrir greiningar án handvirkrar gagnasöfnunar.

Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.

01

Stofna aðgang

Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Veðurstofu Íslands sem upprunakerfi.

02

Tenging við lendingarstað

Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.

03

Engin auðkenning nauðsynleg

Gögn Veðurstofu Íslands eru opinber, svo þú þarft ekki að útvega lykla eða aðgangsupplýsingar.

04

Sjálfvirk uppfærsla

MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.

Hvað gera viðskiptavinir með Veðurstofa Íslands-gögnin?

Tengdu gögnin frá Veðurstofa Íslands við Power BI, gervigreind eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.

Greining

Veður og rekstur saman

Berðu veðurathuganir saman við sölu, orkunotkun eða aðsókn til að greina hvernig veðrið hefur áhrif á reksturinn.

Áætlanagerð

Veðurspár í áætlanagerð

Nýttu veðurspár til að skipuleggja mönnun, flutninga eða viðburði fram í tímann. Hafðu gögnin aðgengileg í BI-tóli til að styðja við ákvarðanatöku.

Gagnatenging

Veðurgögn með öðrum gögnum

Sameinaðu veðurgögn við upplýsingar úr öðrum kerfum, til dæmis gögn frá Seðlabanka Íslands, og skoðaðu hvernig ólíkir þættir þróast saman yfir ákveðið tímabil.

Töflur sem MeshPro sækir úr Veðurstofa Íslands

Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Veðurstofa Íslands og gögnin sem þær innihalda.

2 töflur
Tafla Tafla á lendingarstað Hvað inniheldur hún
Veðurathuganir MP_Vedur_Vedurathugun Mæld veðurgögn frá veðurstöðvum Veðurstofu Íslands, með upplýsingum um veðurstöð, athugunartíma, vindhraða, vindátt, mesta vindhraða, vindhviður, hita, veðurlýsingu, skyggni og uppsafnaða úrkomu.
Veðurspár MP_Vedur_Vedurspa Veðurspár fyrir veðurstöðvar Veðurstofu Íslands, með upplýsingum um veðurstöð, útgáfutíma spár, spátíma, vindhraða, vindátt, hita og veðurlýsingu.
Dæmi um heiti töflu: MP_Vedur_[Tafla]

Ef þig vantar fleiri töflur getur MeshPro auðveldlega bætt þeim við. Einnig er hægt að velja sérstaklega hvaða töflur á að sækja, til dæmis ef þú vilt takmarka gagnamagnið.

Viltu fá meira út úr gögnunum þínum?

MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.

Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.

MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.

Forkröfur

Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.

Aðgangur að API Veðurstofu Íslands

API Veðurstofu Íslands er opið og krefst hvorki lykils né innskráningar, svo þú þarft ekki að útvega neinar aðgangsupplýsingar.

Lendingarstaður fyrir gögnin

Þú þarft gagnagrunn eða annan lendingarstað þar sem veðurgögnin eiga að vera geymd.

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.

Tilbúinn að tengja Veðurstofa Íslands?

Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.

Bóka kynningu
Bóka kynningu