TENGING TILBÚIN

Seðlabanki Íslands tenging
fyrir vexti, gengi og hagtölur

Seðlabanki Íslands birtir opinber gögn um vexti, gengi gjaldmiðla og vísitölur sem fyrirtæki nota í áætlanagerð, uppgjör og greiningu.

Seðlabanki Íslands

Seðlabanki Íslands

Vextir, gengi og vísitölur

UPPRUNI
8 töflur

MeshPro

Sækir, umbreytir og flytur gögn

TENGING
Lendingarstaður

Þinn gagnagrunnur

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

LENDINGARSTAÐUR

Flokkur

Opinber gögn & hagtölur

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði

Gagnaflæði

Gögn lesin uppúr kerfi

Lendingarstaðir

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

Hvernig virkar MeshPro-tengingin við Seðlabanki Íslands?

MeshPro tengist API Seðlabanka Íslands og flytur gögnin sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þau við fjárhags- og rekstrargögn. Þannig fást nýjustu vextir og gengi án handvirkrar gagnasöfnunar.

Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.

01

Stofna aðgang

Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Seðlabanka Íslands sem upprunakerfi.

02

Tenging við lendingarstað

Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.

03

Engin auðkenning nauðsynleg

Gögn Seðlabanka Íslands eru opinber, svo þú þarft ekki að útvega lykla eða aðgangsupplýsingar.

04

Sjálfvirk uppfærsla

MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.

Hvað gera viðskiptavinir með Seðlabanki Íslands-gögnin?

Tengdu gögnin frá Seðlabanki Íslands við Power BI, gervigreind eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.

Fjármál

Vextir og gengi í áætlunum

Nýttu nýjustu upplýsingar um vexti og gengi gjaldmiðla í áætlanagerð og uppgjörum án þess að þurfa að sækja gögnin handvirkt. Tengdu gögnin við Power BI til að fylgjast með þróun vaxta og gengis yfir ákveðið tímabil.

Greining

Verðlag og vísitölur

Fylgstu með þróun vísitölu neysluverðs og gengisvísitalna. Berðu vísitölurnar saman við tekjur og kostnað fyrirtækisins til að meta áhrif verðlags og gengisbreytinga á reksturinn.

Gagnatenging

Opinber gögn með rekstrargögnum

Sameinaðu gögn frá Seðlabanka Íslands við bókhaldsgögn og aðrar hagtölur, til dæmis frá Hagstofunni. Nýttu opinbert gengi til að umreikna fjárhæðir í erlendum gjaldmiðlum og fáðu samræmda yfirsýn yfir fjárhagsupplýsingar fyrirtækisins.

Töflur sem MeshPro sækir úr Seðlabanki Íslands

Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Seðlabanki Íslands og gögnin sem þær innihalda.

8 töflur
Tafla Tafla á lendingarstað Hvað inniheldur hún
Vextir Seðlabankans MP_Sedlabankinn_Vextir_Sedlabanka Daglegir vextir Seðlabanka Íslands, þar á meðal meginvextir (stýrivextir), daglánavextir, vextir á 7 daga veðlánum og viðskiptareikningum. Gögnin innihalda dagsetningu, vaxtaprósentu og heiti og lýsingu viðkomandi tímaraðar.
Dráttarvextir Seðlabankans MP_Sedlabankinn_Drattarvextir_Sedlabanka Dráttarvextir á peningakröfur í íslenskum krónum, með upplýsingum um dagsetningu, vaxtaprósentu og heiti og lýsingu viðkomandi tímaraðar.
Vísitala neysluverðs MP_Sedlabankinn_Visitala_Neysluverds Mánaðarleg vísitala neysluverðs (1988=100) og 12 mánaða breyting hennar í prósentum, með upplýsingum um dagsetningu, vísitölugildi og heiti og lýsingu viðkomandi tímaraðar.
Vextir á millibankamarkaði MP_Sedlabankinn_Vextir_Millibankamarkadi_M_Kronur Daglegir vextir á millibankamarkaði með íslenskar krónur, þar á meðal REIBID-vextir til 12 mánaða. Gögnin innihalda dagsetningu, vaxtaprósentu og heiti og lýsingu viðkomandi tímaraðar.
Skráð miðgengi MP_Sedlabankinn_Skrad_Midgengi Daglegt skráð miðgengi gjaldmiðla gagnvart íslenskri krónu, með upplýsingum um gjaldmiðil, dagsetningu og gengisgildi.
Velta á gjaldeyrismarkaði MP_Sedlabankinn_Velta_Gjaldeyrismarkadi Dagleg heildarvelta á innlendum gjaldeyrismarkaði, gefin upp í milljónum evra, með upplýsingum um dagsetningu, veltu og heiti og lýsingu viðkomandi tímaraðar.
Opinbert viðmiðunargengi MP_Sedlabankinn_Opinbert_Vidmidunargengi Opinbert kaup-, mið- og sölugengi gjaldmiðla gagnvart íslenskri krónu, með upplýsingum um gjaldmiðil, tegund gengis, dagsetningu og gengisgildi.
Gengisvísitölur MP_Sedlabankinn_Gengisvisitolur Daglegar gengisvísitölur krónunnar, þar á meðal vísitala meðalgengis og gengisvísitala miðað við þrönga viðskiptavog. Gögnin innihalda dagsetningu, vísitölugildi og heiti og lýsingu viðkomandi tímaraðar.
Dæmi um heiti töflu: MP_Sedlabankinn_[Tafla]

Ef þig vantar fleiri töflur getur MeshPro auðveldlega bætt þeim við. Einnig er hægt að velja sérstaklega hvaða töflur á að sækja, til dæmis ef þú vilt takmarka gagnamagnið.

Viltu fá meira út úr gögnunum þínum?

MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.

Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.

MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.

Forkröfur

Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.

Aðgangur að API Seðlabanka Íslands

API Seðlabanka Íslands er opið og krefst hvorki lykils né innskráningar, svo þú þarft ekki að útvega neinar aðgangsupplýsingar.

Lendingarstaður fyrir gögnin

Þú þarft gagnagrunn eða annan lendingarstað þar sem gögnin eru geymd til notkunar í skýrslum og greiningu.

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.

Tilbúinn að tengja Seðlabanki Íslands?

Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.

Bóka kynningu
Bóka kynningu