VCount framleiðir skynjara og greiningarhugbúnað til að mæla aðsókn í verslunum og öðrum rýmum. Með gögnunum geturðu fylgst með fjölda gesta, séð hvenær mest umferð er og greint hvernig aðsókn breytist yfir daginn.
VCount
Gestatalning og umferð í verslunum
MeshPro
Sækir, umbreytir og flytur gögn
Þinn gagnagrunnur
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
Flokkur
IoT
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði
Gagnaflæði
Gögn lesin uppúr kerfi
Lendingarstaðir
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
MeshPro tengist VCount API og flytur gestatalningu og upplýsingar um verslanir sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, ásamt sölugögnum ef sala er virk í VCount. Þar er hægt að sameina þau við önnur gögn og fylgjast með umferð án handvirkrar gagnasöfnunar.
Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.
01
Stofna aðgang
Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu VCount sem upprunakerfi.
02
Tenging við lendingarstað
Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.
03
Aðgangur að VCount
Þú útvegar notandanafn og lykilorð fyrir VCount API, eða felur þjónustuaðila VCount að úthluta þeim.
04
Sjálfvirk uppfærsla
MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.
Tengdu gögnin frá VCount við Power BI, gervigreind eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.
Rekstur
Umferð eftir dögum og verslunum
Sjáðu hversu margir gestir koma í hverja verslun og hvernig umferð þróast yfir ákveðið tímabil. Greindu háannatíma og sjáðu hvenær mest álag er á hverri verslun.
Sala
Samband umferðar og sölu
Berðu gestafjölda saman við sölu, ef sala er virk í VCount, til að sjá hversu stór hluti gesta kaupir og skipuleggðu opnunartíma og mönnun eftir því.
Gagnatenging
Gestatalning með öðrum rekstrargögnum
Sameinaðu gestatalningu úr VCount við sölu- og starfsmannagögn í sama gagnagrunni til að fá heildarmynd af rekstri hverrar verslunar.
Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr VCount og gögnin sem þær innihalda.
MP_VCount_[Tafla]
MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.
Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.
MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.
Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.
Aðgangur að VCount API
Þú þarft aðgang að VCount API í gegnum notandanafn og lykilorð sem MeshPro notar til að sækja gögnin. Stjórnandi í VCount getur útvegað þau.
Virkir VCount skynjarar
Skynjarar þurfa að vera uppsettir og í notkun svo gestatalningargögn séu til staðar.
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.
Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.