Netorka sér um söfnun, úrvinnslu og miðlun mæligagna á íslenskum raforkumarkaði. Með tengingunni er hægt að sækja upplýsingar um rafmagnsnotkun og mælingar fyrir notkunarstaði sem viðskiptavinurinn hefur aðgang að og nýta gögnin til greiningar og skýrslugerðar.
Netorka
Mæligögn og rafmagnsnotkun
MeshPro
Sækir, umbreytir og flytur gögn
Þinn gagnagrunnur
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
Flokkur
ESG
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði
Gagnaflæði
Gögn lesin uppúr kerfi
Lendingarstaðir
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
MeshPro tengist Netorka API og flytur mælaálestra og notkunargögn sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól. Þar er hægt að sameina þau við rekstrargögn og fylgjast með orkunotkun án handvirkrar gagnasöfnunar.
Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.
01
Stofna aðgang
Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Netorku sem upprunakerfi.
02
Tenging við lendingarstað
Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.
03
Aðgangur að Netorku
Þú útvegar notandanafn, lykilorð og kennitölu fyrirtækisins fyrir Netorka API.
04
Sjálfvirk uppfærsla
MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.
Tengdu gögnin frá Netorka við Power BI, gervigreind eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.
Orka
Yfirsýn yfir rafmagnsnotkun
Sjáðu rafmagnsnotkun eftir mælum og notkunarstöðum og fylgstu með þróun hennar yfir ákveðið tímabil.
Rekstur
Orkunotkun í rekstrargreiningu
Tengdu notkunargögn við rekstrartölur til að greina orkunotkun eftir starfsstöðvum og koma auga á frávik.
Gagnatenging
Orkunotkun með öðrum gögnum
Sameinaðu gögn frá Netorku við veðurgögn frá Veðurstofu Íslands eða sölugögn og berðu saman orkunotkun milli staða.
Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Netorka og gögnin sem þær innihalda.
MP_Netorka_[Tafla]
MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.
Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.
MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.
Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.
Aðgangur að Netorka API
Þú þarft aðgang að Netorka API í gegnum notandanafn og lykilorð, auk kennitölu fyrirtækisins sem mæligögnin eru skráð á. MeshPro notar þær upplýsingar til að sækja gögnin.
Virkir mælar skráðir á kennitölu
Mælar þurfa að vera skráðir á kennitölu fyrirtækisins svo mæligögn séu til staðar.
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.
Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.