Icelandair er íslenskt flugfélag. Fyrirtæki sem kaupa flug af Icelandair geta fengið upplýsingar um flugferðir starfsmanna sinna, sem nýtast meðal annars í losunarbókhald og sjálfbærniskýrslur.
Icelandair
Flugferðir fyrirtækis fyrir losunarbókhald
MeshPro
Sækir, umbreytir og flytur gögn
Þinn gagnagrunnur
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
Flokkur
ESG
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði
Gagnaflæði
Gögn lesin uppúr kerfi
Lendingarstaðir
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
MeshPro tengist Icelandair API og flytur upplýsingar um flugferðir fyrirtækisins sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þær við önnur umhverfis- og rekstrargögn. Þannig fæst yfirsýn yfir ferðalosun án handvirkrar gagnasöfnunar.
Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.
01
Stofna aðgang
Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Icelandair sem upprunakerfi.
02
Tenging við lendingarstað
Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.
03
Aðgangur að Icelandair
Þú útvegar notandanafn og lykilorð fyrir Icelandair API ásamt kennitölu fyrirtækisins, eða felur Icelandair að úthluta aðganginum.
04
Sjálfvirk uppfærsla
MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.
Tengdu gögnin frá Icelandair við Power BI, gervigreind eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.
Sjálfbærni
Losun vegna flugferða
Reiknaðu út kolefnislosun vegna viðskiptaferða starfsmanna og nýttu niðurstöðurnar í loftslagsbókhald og sjálfbærniskýrslur fyrirtækisins án handvirkrar gagnasöfnunar.
Rekstur
Yfirsýn yfir ferðalög
Fylgstu með fjölda flugferða og hvaða flugleiðir eru farnar. Berðu saman farþegafjölda eftir flugleiðum og tímabilum.
Gagnatenging
Ferðagögn með öðrum umhverfisgögnum
Sameinaðu gögn um flugferðir við aðrar umhverfisupplýsingar, til dæmis úrgangsgögn frá Íslenska gámafélaginu, og fáðu heildstæða yfirsýn yfir umhverfisáhrif fyrirtækisins í einu BI-tóli.
Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Icelandair og gögnin sem þær innihalda.
MP_Icelandair_[Tafla]
MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.
Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.
MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.
Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.
Aðgangur að Icelandair API
Þú þarft aðgang að Icelandair API í gegnum notandanafn og lykilorð fyrirtækisins hjá Icelandair, auk kennitölu fyrirtækisins. MeshPro notar þessar upplýsingar til að sækja gögnin.
Skráðar flugferðir á kennitölu fyrirtækisins
Fyrirtækið þarf að hafa keypt flug hjá Icelandair svo gögn séu til staðar.
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.
Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.