GoogleCloudCost tenging

Skýjakostnaður og notkunargreining úr Google Cloud.

Google Cloud Cost

Google Cloud Cost

Skýjakostnaður og notkunargreining úr Google Cloud.

UPPRUNI
9 töflur

MeshPro

Sækir, umbreytir og flytur gögn

TENGING
Lendingarstaður

Þinn gagnagrunnur

SQL Server · PostgreSQL

LENDINGARSTAÐUR
Í vinnslu Við erum að vinna í þessum upplýsingum — sumar upplýsingar gætu vantað eða verið ófullkomnar.

Flokkur

Sérlausnir & API

Uppfærslutíðni

Gagnaflæði

Lesaðgangur, ein átt

Lendingarstaðir

SQL Server · PostgreSQL

Hvernig virkar MeshPro-tengingin við Google Cloud Cost?

Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.

01

Stofna aðgang

Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu kerfið sem þú vilt tengja.

02

Tenging við lendingarstað

Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.

03

Aðgangur að kerfinu

Þú útvegar notanda með lesaðgang að kerfinu. Notandinn getur verið stofnaður af kerfisstjóra hjá þér eða í samráði við þjónustuaðila kerfisins.

04

Sjálfvirk uppfærsla

MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.

Töflur sem MeshPro sækir úr Google Cloud Cost

Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Google Cloud Cost og gögnin sem þær innihalda.

9 töflur
Tafla Tafla á lendingarstað Hvað inniheldur hún
Kostnaðar- og notkunarfærslur BQ_BillingQuery Kostnaðar- og notkunarfærslur úr Google Cloud reikningsútflutningi, sundurliðaðar eftir þjónustu, tilfangi, verkefni og staðsetningu.
Kostnaðarfærslur (framhaldssíður) BQ_GetQueryResults Frekari síður af sömu kostnaðar- og notkunarfærslum, sóttar þegar fyrirspurnin skilar fleiri línum en rúmast á fyrstu síðu.
Fjárhagsáætlanir Budgets_List Yfirlit yfir skilgreindar fjárhagsáætlanir á reikningsaðgangi með fjárhæðum og viðvörunarmörkum.
Fjárhagsáætlun (ítarleg) Budgets_Get Ítarlegar upplýsingar um staka fjárhagsáætlun, þar á meðal umfang, fjárhæð og viðvörunarreglur.
Þjónustuflokkar (verðskrá) Pricing_Catalog_ListServices Listi yfir Google Cloud þjónustur sem hafa opinbera verðskrá.
Verðskrá eininga Pricing_Catalog_ListSkus Verð á einstökum tilföngum innan þjónustu, sundurliðað eftir mælieiningu og verðþrepum fyrir tiltekinn mánuð.
Sparnaðartillögur (skuldbindingar) Recommender_CUD_ListForBillingAccount Tillögur Google um nýtingarskuldbindingar til að lækka kostnað, með forgangsröðun og áætluðum ávinningi.
Nýtingarskuldbindingar (öll svæði) Compute_Commitments_AggregatedList Keyptar nýtingarskuldbindingar fyrir tölvuafl þvert á öll svæði, með gildistíma og skuldbundnu magni.
Nýtingarskuldbindingar (svæði) Compute_Commitments_ListByRegion Keyptar nýtingarskuldbindingar fyrir tölvuafl innan tiltekins svæðis, með gildistíma og skuldbundnu magni.
Dæmi um heiti töflu: [Tafla]

Ef þig vantar fleiri töflur getur MeshPro auðveldlega bætt þeim við. Einnig er hægt að velja sérstaklega hvaða töflur á að sækja, til dæmis ef þú vilt takmarka gagnamagnið.

Viltu fá meira út úr gögnunum þínum?

MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.

Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.

MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.

Tilbúinn að tengja Google Cloud Cost?

Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.

Bóka kynningu
Bóka kynningu