Íslenska gámafélagið er íslenskt úrgangsþjónustufyrirtæki sem sér um söfnun, flokkun og endurvinnslu úrgangs fyrir fyrirtæki, einstaklinga og sveitarfélög. Viðskiptavinir geta fengið upplýsingar um söfnun úrgangs hjá sér til nota í umhverfis- og sjálfbærniskýrslum.
Íslenska gámafélagið
Úrgangsgögn fyrir umhverfisbókhald
MeshPro
Sækir, umbreytir og flytur gögn
Þinn gagnagrunnur
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
Flokkur
ESG
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði
Gagnaflæði
Gögn lesin uppúr kerfi
Lendingarstaðir
SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake
MeshPro tengist API Íslenska gámafélagsins og flytur upplýsingar um söfnun úrgangs sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þær við önnur umhverfisgögn. Þannig fæst yfirsýn yfir úrgangsmál án handvirkrar gagnasöfnunar.
Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.
01
Stofna aðgang
Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Íslenska gámafélagið sem upprunakerfi.
02
Tenging við lendingarstað
Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.
03
Aðgangur að Íslenska gámafélaginu
Þú útvegar notandanafn og lykilorð fyrir API Íslenska gámafélagsins ásamt kennitölu fyrirtækisins, eða felur Íslenska gámafélaginu að úthluta aðganginum.
04
Sjálfvirk uppfærsla
MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.
Tengdu gögnin frá Íslenska gámafélagið við Power BI, gervigreind eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.
Sjálfbærni
Úrgangur í sjálfbærniskýrslum
Nýttu úrgangsgögn í umhverfis- og sjálfbærniskýrslum fyrirtækisins án þess að þurfa að safna þeim saman handvirkt.
Rekstur
Yfirsýn yfir úrgangsmál
Fylgstu með þróun úrgangsmagns yfir ákveðið tímabil og greindu hvar tækifæri eru til að draga úr úrgangi.
Gagnatenging
Úrgangur með öðrum umhverfisgögnum
Sameinaðu úrgangsgögn við aðrar umhverfisupplýsingar, til dæmis gögn um flugferðir frá Icelandair, og fáðu heildstæða yfirsýn í einu BI-tóli.
Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Íslenska gámafélagið og gögnin sem þær innihalda.
MP_Gamafelagid_[Tafla]
MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.
Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.
MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.
Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.
Aðgangur að API Íslenska gámafélagsins
Þú þarft aðgang að API Íslenska gámafélagsins í gegnum notandanafn og lykilorð fyrirtækisins, auk kennitölu fyrirtækisins. MeshPro notar þessar upplýsingar til að sækja gögnin.
Virk þjónusta hjá Íslenska gámafélaginu
Fyrirtækið þarf að vera í viðskiptum við Íslenska gámafélagið svo gögn um söfnun úrgangs séu til staðar.
Uppfærslutíðni
Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.
Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.