TENGING TILBÚIN

Elma tenging
fyrir uppboð á raforku

Elma er íslenskur viðskiptavettvangur fyrir raforku, í eigu Landsnets. Fyrirtæki nota uppboðskerfi Elmu til að eiga viðskipti með raforkusamninga.

Elma

Elma

Uppboð, tilboð, viðskipti og verð

UPPRUNI
6 töflur

MeshPro

Sækir, umbreytir og flytur gögn

TENGING
Lendingarstaður

Þinn gagnagrunnur

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

LENDINGARSTAÐUR

Flokkur

ESG

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði

Gagnaflæði

Gögn lesin uppúr kerfi

Lendingarstaðir

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

Hvernig virkar MeshPro-tengingin við Elma?

MeshPro tengist Elma API og flytur gögn um uppboð, tilboð, viðskipti og verð sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þau við innkaup, orkunotkun og önnur rekstrargögn. Þannig fæst yfirsýn yfir þátttöku og niðurstöður uppboða án handvirkrar gagnasöfnunar.

Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.

01

Stofna aðgang

Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Elma sem upprunakerfi.

02

Tenging við lendingarstað

Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.

03

Aðgangur að Elma

Þú útvegar auðkenni (client ID) og leynilykil (client secret) fyrir Elma API, eða óskar eftir þeim hjá Elmu.

04

Sjálfvirk uppfærsla

MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.

Hvað gera viðskiptavinir með Elma-gögnin?

Tengdu gögnin frá Elma við Power BI, gervigreind eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.

Orkuviðskipti

Yfirsýn yfir uppboð og niðurstöður

Fylgstu með stöðu uppboða, hvort þau séu opin, lokuð eða með birtar niðurstöður, og greindu hvernig tilboð fyrirtækisins skiluðu sér í viðskiptum.

Fjármál

Verðþróun og samanburður

Berðu saman markaðsverð milli uppboða, samninga og svæða yfir ákveðið tímabil. Nýttu niðurstöðurnar við áætlanagerð og ákvarðanir um raforkukaup.

Gagnatenging

Raforkukaup í samhengi við reksturinn

Sameinaðu uppboðsgögn frá Elmu við gögn um orkunotkun og bókhald til að fá heildstæðari yfirsýn yfir raforkukaup og kostnað fyrirtækisins.

Töflur sem MeshPro sækir úr Elma

Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Elma og gögnin sem þær innihalda.

6 töflur
Tafla Tafla á lendingarstað Hvað inniheldur hún
Uppboð MP_Elma_Auctions Listi yfir uppboð með upplýsingum um stöðu, afhendingartímabil, raforkusamninga, gjaldmiðla og tegundir tilboða.
Uppboðstilboð MP_Elma_Auction_orders Tilboð fyrirtækja í einstökum uppboðum, með upplýsingum um tilboðsgerð, afhendingarsvæði, magn, verð og stöðu tilboðs.
Uppboðsviðskipti MP_Elma_Auction_trade Viðskipti sem verða til í uppboðum, með upplýsingum um afhendingartíma, magn, verð, hvort um kaup eða sölu er að ræða og stöðu viðskipta.
Uppboðsverð MP_Elma_Auction_prices Markaðsverð sem myndast í uppboðum, sundurliðað eftir samningum, afhendingarsvæðum og gjaldmiðlum.
Reikningar MP_Elma_Invoices Yfirlit yfir reikninga frá Elmu með upplýsingum um reikningsnúmer, dagsetningar og fjárhæðir.
Reikningar (PDF) MP_Elma_DownloadInvoices Sækir reikninga frá Elmu á PDF-formi til varðveislu og frekari vinnslu.
Dæmi um heiti töflu: MP_Elma_[Tafla]

Ef þig vantar fleiri töflur getur MeshPro auðveldlega bætt þeim við. Einnig er hægt að velja sérstaklega hvaða töflur á að sækja, til dæmis ef þú vilt takmarka gagnamagnið.

Viltu fá meira út úr gögnunum þínum?

MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.

Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.

MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.

Forkröfur

Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.

Aðgangur að Elma API

Þú þarft aðgang að Elma API í gegnum auðkenni (client ID) og leynilykil (client secret) sem MeshPro notar til að sækja gögnin. Þú óskar eftir þeim hjá Elmu.

Þátttaka í uppboðum hjá Elmu

Fyrirtækið þarf að vera skráð sem þátttakandi í uppboðskerfi Elmu og hafa tekið þátt í uppboðum svo gögnin séu gagnleg.

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.

Tilbúinn að tengja Elma?

Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.

Bóka kynningu
Bóka kynningu