TENGING TILBÚIN

Bókun tenging
fyrir bókanir í ferða- og afþreyingarþjónustu

Bókun er bókunar- og rekstrarkerfi fyrir ferða- og afþreyingarfyrirtæki og er hluti af Tripadvisor. Fyrirtæki nota kerfið til að taka við bókunum, halda utan um viðskiptavini, greiðslur og sölu í gegnum ólíkar sölurásir.

Bókun

Bókun

Bókanir og greiðslur ferðaþjónustufyrirtækja

UPPRUNI
2 töflur

MeshPro

Sækir, umbreytir og flytur gögn

TENGING
Lendingarstaður

Þinn gagnagrunnur

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

LENDINGARSTAÐUR

Flokkur

Ferðaþjónusta

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði

Gagnaflæði

Gögn lesin uppúr kerfi

Lendingarstaðir

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

Hvernig virkar MeshPro-tengingin við Bókun?

MeshPro tengist Bókun API og flytur bókanir sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þær við bókhalds- og rekstrargögn. Þannig fæst yfirsýn yfir bókanir og tekjur án handvirkrar gagnasöfnunar.

Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.

01

Stofna aðgang

Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu Bókun sem upprunakerfi.

02

Tenging við lendingarstað

Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.

03

Aðgangur að Bókun

Þú útvegar aðgangslykil (Access Key) og leynilykil (Secret Key) fyrir Bókun API. Ef þörf krefur getur Bókun úthlutað lyklunum.

04

Sjálfvirk uppfærsla

MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.

Hvað gera viðskiptavinir með Bókun-gögnin?

Tengdu gögnin frá Bókun við Power BI eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.

Sala

Bókanir og tekjur eftir sölurásum

Fylgstu með fjölda bókana, berðu saman árangur ólíkra sölurása og sjáðu hvernig tekjur þróast yfir ákveðið tímabil. Greindu hvaða ferðir og afþreying skila mestum tekjum og hvernig bókanir breytast milli tímabila.

Fjármál

Greiðslustaða bókana

Fáðu yfirsýn yfir greiddar og ógreiddar upphæðir fyrir hverja bókun og fylgstu með afbókunum og stöðu bókana. Þannig er auðveldara að sjá hvað hefur verið greitt og hvað er enn útistandandi.

Gagnatenging

Sjálfvirk bókun í Business Central

Nýttu bókunargögn úr Bókun til að útbúa færslur fyrir bókhaldið án handvirkrar yfirfærslu upplýsinga. Með MeshPro DataSync eru gögnin undirbúin og færð sjálfvirkt inn í Business Central, sem sparar tíma, dregur úr handvirkri vinnu og minnkar hættu á villum.

Töflur sem MeshPro sækir úr Bókun

Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr Bókun og gögnin sem þær innihalda.

2 töflur
Tafla Tafla á lendingarstað Hvað inniheldur hún
Bókanir viðskiptavina MP_Bokun_Bookings Bókanir viðskiptavina með upplýsingum um stöðu bókunar, verð og greiðslur, ásamt tengdum ferðum og afþreyingu.
Söluaðilar og vörur bókana MP_Bokun_BookingsExtra Nánari upplýsingar um sölu bókana, þar á meðal söluaðila, vöru, söluþóknun, greidda upphæð, stöðu og heildarverð. Gögnin auðvelda meðal annars að greina hvaða söluaðilar selja hverja ferð eða afþreyingu.
Dæmi um heiti töflu: MP_Bokun_[Tafla]

Ef þig vantar fleiri töflur getur MeshPro auðveldlega bætt þeim við. Einnig er hægt að velja sérstaklega hvaða töflur á að sækja, til dæmis ef þú vilt takmarka gagnamagnið.

Viltu fá meira út úr gögnunum þínum?

MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.

Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.

MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.

Forkröfur

Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.

Aðgangur að Bókun API

Þú þarft access key og secret key fyrir Bókun API sem MeshPro notar til að sækja gögnin. Stjórnandi í Bókun getur útbúið þá.

Virkt Bókun kerfi með skráðum bókunum

Kerfið þarf að vera í notkun og bókanir þurfa að vera skráðar svo gögnin séu gagnleg.

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.

Tilbúinn að tengja Bókun?

Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.

Bóka kynningu
Bóka kynningu