TENGING TILBÚIN

50Skills tenging
fyrir innleiðingu og starfslok starfsmanna

50Skills er skýjalausn fyrir mannauðsferla sem fyrirtæki nota til að stýra móttöku nýrra starfsmanna, tilfærslum innan fyrirtækisins og starfslokum á skipulagðan og sjálfvirkan hátt.

50Skills

50Skills

Ferlar og framvinda starfsmanna

UPPRUNI
3 töflur
MeshPro

MeshPro

Sækir, umbreytir og flytur gögn

TENGING
Lendingarstaður

Þinn gagnagrunnur

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

LENDINGARSTAÐUR

Flokkur

Mannauður & tímaskráning

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla · Tíðari uppfærslur í boði

Gagnaflæði

Gögn lesin uppúr kerfi

Lendingarstaðir

SQL Server · PostgreSQL · Azure Datalake

Hvernig virkar MeshPro-tengingin við 50Skills?

MeshPro tengist 50Skills API og flytur upplýsingar um ferla og þátttakendur sjálfvirkt yfir í gagnagrunn eða BI-tól, þar sem hægt er að sameina þær við önnur mannauðsgögn. Þannig fæst yfirsýn yfir framvindu starfsmanna án handvirkrar gagnasöfnunar.

Fjögur einföld skref frá uppsetningu að sjálfvirkum gagnaflutningi.

01

Stofna aðgang

Stofnaðu prufuaðgang á MeshPro gáttinni og veldu 50Skills sem upprunakerfi.

02

Tenging við lendingarstað

Þú veitir MeshPro aðgang að gagnagrunninum eða öðrum lendingarstað þar sem gögnin eiga að vera geymd.

03

Aðgangur að 50Skills

Þú útvegar auðkenni (client ID) og leynilykil (client secret) fyrir 50Skills API, eða felur þjónustuaðila 50Skills að úthluta þeim.

04

Sjálfvirk uppfærsla

MeshPro setur upp tenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna. Þegar uppsetningunni er lokið eru gögnin tilbúin til notkunar.

Hvað gera viðskiptavinir með 50Skills-gögnin?

Tengdu gögnin frá 50Skills við Power BI eða annað skýrslutól. Með MeshPro uppfærast gögnin sjálfkrafa svo þú hefur alltaf aðgang að nýjustu gögnunum.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig fyrirtæki geta nýtt gögnin til greiningar og ákvarðanatöku.

Mannauður

Framvinda innleiðingar

Fylgstu með því hversu langt nýir starfsmenn eru komnir í innleiðingarferlinu og hvar þeir standa miðað við aðra. Tengdu gögnin við Power BI til að sjá framvindu fyrir hvern feril.

Mannauður

Yfirsýn yfir virka ferla

Sjáðu hvaða ferlar eru virkir og hversu margir starfsmenn eru í hverjum þeirra, hvort sem um er að ræða innleiðingu, tilfærslur eða starfslok.

Gagnatenging

Heildarmynd af starfsferli

Sameinaðu gögn úr 50Skills við starfsmannaskrá úr Kjarna eða viðveru úr Timon, auk þess að fylgjast með framvindu ferla yfir ákveðið tímabil.

Töflur sem MeshPro sækir úr 50Skills

Yfirlit yfir þær töflur sem MeshPro getur sótt úr 50Skills og gögnin sem þær innihalda.

3 töflur
Tafla Tafla á lendingarstað Hvað inniheldur hún
Ferlar starfsmanna MP_50Skills_Journeys Listi yfir ferla, til dæmis innleiðingu nýrra starfsmanna eða starfslok, með upplýsingum um heiti, lýsingu, virkni og útgáfustöðu.
Þátttakendur í ferlum MP_50Skills_Travellers Starfsmenn sem taka þátt í ferlum, með upplýsingum um netfang, síma, framvindu og stöðu innan hvers ferils.
Ítarleg skráning þátttakenda MP_50Skills_Travellers_journeys Ítarlegar upplýsingar um hvern þátttakanda í ferli, með upplýsingum um upphafs- og lokadagsetningar, hvort ferill sé í bið og aðgerðir innan ferilsins.
Dæmi um heiti töflu: MP_50Skills_[Tafla]

Ef þig vantar fleiri töflur getur MeshPro auðveldlega bætt þeim við. Einnig er hægt að velja sérstaklega hvaða töflur á að sækja, til dæmis ef þú vilt takmarka gagnamagnið.

Viltu fá meira út úr gögnunum þínum?

MeshPro er dótturfélag Expectus og fyrirtækin vinna saman að því að gera gögn aðgengileg og nýtanleg. MeshPro sér um gagnatenginguna og sjálfvirka uppfærslu gagna, en Expectus veitir ráðgjöf og aðstoð við að umbreyta gögnunum í gagnlegar skýrslur, mælaborð og greiningar.

Expectus er BI ráðgjafafyrirtæki og sérhæfir sig meðal annars í uppsetningu gagnavöruhúsa, gagnagreiningu og uppbyggingu mælaborða í Power BI.

MeshPro sér um gagnatenginguna. Expectus hjálpar þér að fá meira út úr gögnunum.

Forkröfur

Eftirfarandi þarf að vera til staðar til að hægt sé að setja upp tenginguna.

Aðgangur að 50Skills API

Þú þarft aðgang að 50Skills API í gegnum auðkenni (client ID) og leynilykil (client secret) sem MeshPro notar til að sækja gögnin. Stjórnandi í 50Skills getur útvegað þau.

Virkt 50Skills kerfi með skráðum ferlum

Kerfið þarf að vera í notkun og ferlar og þátttakendur þurfa að vera skráðir svo gögnin séu gagnleg.

Uppfærslutíðni

Dagleg uppfærsla er innifalin í öllum áskriftum. Hægt er að uppfæra gögn oftar, meðal annars á klukkustundar fresti, með viðeigandi áskriftarflokki. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um möguleika og uppsetningu.

Tilbúinn að tengja 50Skills?

Bókaðu ókeypis kynningu og við sýnum þér hvernig við setjum tenginguna upp.

Bóka kynningu