Lausnir 4 mín lestur

Mörg kerfi, sameiginleg yfirsýn

Þegar gögnin eru dreifð um mörg kerfi ræðst svarið af því hvaða kerfi er skoðað. MeshPro DataFlow safnar þeim á einn stað.

Salan er í einu kerfi, bókhaldið í öðru, birgðirnar í því þriðja og netverslunin í því fjórða. Þegar spurt er hvernig reksturinn standi getur svarið ráðist af því hvaða kerfi er skoðað.

Oft brúar starfsfólkið bilið handvirkt. Einhver sækir skrár, sameinar þær í Excel og sendir skýrslu áfram. Það getur gengið vel um tíma. En ferlið verður viðkvæmara eftir því sem kerfunum fjölgar og meira af þekkingunni safnast hjá einum starfsmanni.

Hvað gerist þegar sá starfsmaður fer í frí? Eða þegar skýrsla byggir á gögnum sem voru sótt áður en síðustu færslur skiluðu sér?

Sameiginlegur grunnur að áreiðanlegum upplýsingum

Markmiðið er að safna viðeigandi gögnum úr ólíkum kerfum í miðlæga gagnageymslu, samræma þau og uppfæra reglulega. Þannig geta skýrslur, greiningar og gervigreindarlausnir byggt á sama grunni.

Þetta er oft kallað ein útgáfa af sannleikanum (e. Single Source of Truth). Til að það gangi upp þarf þó meira en sameiginlega geymslu. Skilgreiningar þurfa líka að vera skýrar: Hvað telst til sölu? Er hún með eða án virðisaukaskatts? Hvernig eru skil meðhöndluð og hvaða tímabil er verið að skoða?

Þegar gögnin og skilgreiningarnar fara saman fer minni tími í að stemma af tölur og meiri tími gefst til að nýta þær.

Hvað gerir MeshPro DataFlow?

MeshPro DataFlow sækir gögn sjálfvirkt úr kerfunum þínum og flytur þau í gagnageymslu að þínu vali, til dæmis gagnagrunn, gagnavöruhús eða skýjageymslu.

Gagnaferlarnir keyra samkvæmt skilgreindri áætlun. Í stað þess að starfsmaður sæki og sameini sömu skrár aftur og aftur sér DataFlow um gagnaflutninginn.

Dæmigert ferli er í þremur skrefum:

  • Sækir gögn úr vefþjónustu, gagnagrunni, SFTP-möppu eða skráasafni.
  • Samræmir snið samkvæmt skilgreindum reglum, til dæmis dálkaheiti og dagsetningasnið.
  • Skrifar gögnin í miðlæga gagnageymslu, þar sem hægt er að vinna með þau ásamt gögnum úr öðrum kerfum.
MeshPro DataFlow sækir gögn úr kerfunum þínum og skilar þeim í gagnageymslu að þínu vali.
MeshPro DataFlow sækir gögn úr kerfunum þínum og skilar þeim í gagnageymslu að þínu vali.

Lausnin styður auðkenningu við vefþjónustur og samhliða keyrslu margra ferla. Ef tenging við upprunakerfið er þegar til nýtum við hana við uppsetninguna. Umfang vinnunnar fer þá meðal annars eftir því hvaða gögn á að sækja og hvernig á að skila þeim.

Hvar nýtist DataFlow?

DataFlow nýtist þegar safna þarf gögnum reglulega úr mörgum áttum og gera þau aðgengileg til frekari vinnslu. Dæmi um notkun:

  • Sameina sölugögn úr netverslun og afgreiðslukerfum til að fá yfirsýn yfir söluleiðir.
  • Safna sölugögnum frá verslanakeðjum fyrir heildsala og framleiðendur.
  • Flytja gögn úr bókhalds- og rekstrarkerfum í sameiginlegt gagnavöruhús.
  • Sækja reikningsgögn úr vefþjónustu og gera þau aðgengileg fyrir skýrslugerð.

Í öllum þessum tilvikum er markmiðið hið sama: að draga úr endurtekinni handavinnu og gera gagnaöflunina reglulegri og síður háða einstökum starfsmönnum.

Betri grunnur fyrir gervigreind

Gervigreind sem á að svara spurningum um sölu, birgðir eða kostnað þarf aðgang að viðeigandi og áreiðanlegum upplýsingum. Gæði svaranna ráðast meðal annars af því hvort gögnin séu nægilega nýleg og skilgreiningar þeirra skýrar.

DataFlow getur stutt við þann grunn með því að safna gögnunum og uppfæra þau samkvæmt áætlun. Hversu nýleg þau eru ræðst af keyrslutíðni ferlanna og því hvenær upplýsingar verða aðgengilegar í upprunakerfunum.

Þá byggir gervigreindin á reglulegri gagnaöflun en ekki á skrám sem einhver þarf að taka saman handvirkt.

Gögnin fara í þitt umhverfi

Þú velur hvar gögnin eru geymd. Þau geta farið beint í gagnageymsluna þína eða verið geymd tímabundið til vinnslu á leiðinni, eftir því hvernig ferlið er sett upp.

MeshPro notar ekki sjálfgefið eigin gagnageymslu sem varanlegan áfangastað fyrir gögnin þín. DataFlow sér um gagnaflutninginn en gögnin eru varðveitt á þeim stað sem þú velur.

Fyrir hverja er lausnin?

DataFlow hentar meðal annars:

  • Fjármálasviðum sem þurfa að sameina upplýsingar úr mörgum kerfum.
  • Tækniteymum sem vilja draga úr vinnu við þróun og viðhald gagnatenginga.
  • Ráðgjöfum og samstarfsaðilum sem vilja bjóða viðskiptavinum sínum samþættingu gagna.

Lausnin keyrir á áætlun og hentar því reglulegum gagnaflutningum. Ef upplýsingar þurfa að berast um leið og breyting verður í upprunakerfi þarf að skoða hvort önnur útfærsla henti betur.

Byrjum á gögnunum sem þú tekur saman í dag

Er einhver hjá þér að sækja gögn úr mörgum kerfum og sameina þau í sömu skýrsluna í hverri viku? Það er gott verkefni til að byrja á.

Bókaðu kynningu og segðu okkur hvaðan gögnin koma, hvert þau þurfa að fara og hversu oft þau þurfa að uppfærast.

DataFlow er ein af þremur lausnum MeshPro. Kynntu þér heildarmyndina hér.

Sjálfvirk gagnavinna, sami hugsunarháttur

Við einföldum flæði gagna milli kerfa svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli. Lestu meira um lausnirnar okkar eða bókaðu kynningu.

Bóka kynningu